Lavender ilmkjarnaolía 10 ml
Djúpur og jarðbundinn ilmur sem tengist kyrrð og jafnvægi. Hentar vel í slökun, hugleiðslu og rólegt andrúmsloft. Tilvalin í ilmlampa, bað, nuddolíu eða sauna.
Lavender ilmkjarnaolía er ein af þekktustu og vinsælustu ilmkjarnaolíunum. Hún hefur mildan, blómatón með hreinum og róandi ilm sem hentar vel í kvöldrútínu, slökun og rólegt andrúmsloft.
Lavender er fjölhæf og blandast vel við flestar aðrar ilmkjarnaolíur. Hún hentar í ilmlampa, bað og í þynntri nuddolíu.
Í húðvörum er hún notuð í þynntri blöndu til að styðja við jafnvægi og mýkt húðar og hentar vel fyrir viðkvæma húð.
Virk efni: M.a. alfa-pinen, limonen, camphor, linalool og lavendulyl acetat.
Í ilmlampa/diffuser: 3–5 dropar Í bað: 5-10 dropar blandaðir í burðarolíu, salt eða mjólk Í nudd: 5 dropar í 10 ml burðarolíu Innöndun: 3–5 dropar í skál af heitu vatni. Andið rólega að ykkur ilminum í nokkrar mínútur. Einnig er hægt að setja einn dropa í lófa, nudda saman og draga andann djúpt að sér. Sem ilmvatn: Sumar ilmkjarnaolíur má nota í mjög þynntri blöndu sem náttúrulegan ilm á húð. Varúð Þynnið fyrir notkun á húð. Ekki til inntöku. Forðist snertingu við augu og slímhúð. Hættið notkun ef erting kemur fram. Leitið ráða hjá lækni á meðgöngu.
Virk efni: M.a. alfa-pinen, limonen, camphor, linalool og lavendulyl acetat.