Fara í meginmál

Um Heilsu

Heilsa hefur verið leiðandi á íslenskum markaði fyrir heilsuvörur í meira en 50 ár.

Frá stofnun árið 1973 hefur markmið okkar verið að stuðla að betri heilsu og vellíðan með vönduðum vörum, traustri þjónustu og lausnum sem styðja við daglegt líf.

Í dag er Heilsa öflugt sölu-, markaðs- og dreifingarfyrirtæki á sviði heilsu, vellíðanar og lyfja. Við flytjum inn, þróum og dreifum fjölbreyttu úrvali vítamína og bætiefna, heilbrigðisvara, húð- og snyrtivara, matvæla og lyfja til apóteka, matvöruverslana, snyrtistofa, sérverslana og annarra samstarfsaðila um allt land.

Heilsa er stoltur eigandi Gula Miðans, eins þekktasta íslenska vörumerkisins á sviði vítamína og bætiefna, og vinnur jafnframt með fjölmörgum öflugum alþjóðlegum vörumerkjum.

Hjá Heilsu sameinum við áratuga reynslu, fagþekkingu og sterkt dreifikerfi við stöðuga leit að nýjum vörum og lausnum. Við leggjum áherslu á gæði, áreiðanleika og fagmennsku og viljum vera fyrsti valkostur viðskiptavina og samstarfsaðila á íslenskum heilsu- og lyfjamarkaði.