Fara í meginmál

Sagan okkar

Örn Svavarsson - stofnandi Heilsu

Frumkvöðlastarf í meira en hálfa öld

Heilsa var stofnuð árið 1973 af Erni Svavarssyni, einum af frumkvöðlum landsins á sviði heilsu og hollustu. Á þeim tíma voru heilsuvörur lítt þekktar á Íslandi og úrval og aðgengi takmarkað.

Á fyrstu árum fyrirtækisins hófst samstarf við brautryðjendur á borð við Bioforce og Biotta. Með markvissri uppbyggingu á vöruframboði og dreifingu átti Heilsa þátt í að ryðja heilsuvörum braut inn í matvöruverslanir, apótek og sérverslanir um allt land.

Á næstu áratugum byggði Heilsa upp öfluga heildsölu og varð samstarfsaðili fjölmargra alþjóðlegra vörumerkja á sviði vítamína, bætiefna, matvæla, húð- og snyrtivara og heilbrigðisvara. Fyrirtækið stofnaði jafnframt Heilsuhúsið, fyrstu sérverslun landsins með heilsuvörur, sem síðar varð leiðandi verslunarkeðja á sínu sviði.

Árið 2005 keypti Lyfja Heilsu og árið 2024 urðu bæði félögin hluti af Festi. Heilsa starfar í dag sem sjálfstætt félag innan samstæðunnar og hefur starfsemin þróast áfram með aukinni áherslu á eigin vörumerki, vöruþróun, lyf og nýjar heilbrigðislausnir samhliða innflutningi og dreifingu.

Meira en hálfri öld eftir stofnun byggir Heilsa enn á þeirri frumkvöðlahugsun sem lagði grunninn að fyrirtækinu: að sjá ný tækifæri, sækja fram og gera vandaðar vörur og lausnir fyrir heilsu og vellíðan aðgengilegar íslenskum neytendum.