Sítrónugras ilmkjarnaolía 10 ml
Fersk og sítruskennd olía sem gefur léttleika og hreina stemningu. Hentar vel til að skapa orku og ferskleika í rými. Tilvalin í ilmlampa, bað, nuddolíu eða sauna.
Sítrónugras ilmkjarnaolía hefur ferskan, tærandi og sítruskenndan ilm sem gefur rými léttleika og hreina stemningu. Hún er vinsæl í ilmblöndum þegar óskað er eftir orku og ferskleika.
Olían hentar vel í ilmlampa, gufun og í þynntri nuddblöndu. Hún blandast fallega við lavender, rósmarín og aðrar sítrusolíur.
Í húðvörum er hún notuð í mjög þynntri blöndu til að styðja við jafnvægi og frískt yfirbragð húðar.
Sítrónugras er einnig algeng í náttúrulegum heimilisblöndum og ilmvörum þar sem óskað er eftir ferskum og hreinum ilm.
Virk efni: M.a. myrcen, citronellan, geranyl acetat, nerol, geraniol og neral.
Í ilmlampa/diffuser: 3–5 dropar Í bað: 5-10 dropar blandaðir í burðarolíu, salt eða mjólk Í nudd: 5 dropar í 10 ml burðarolíu Innöndun: 3–5 dropar í skál af heitu vatni. Andið rólega að ykkur ilminum í nokkrar mínútur. Einnig er hægt að setja einn dropa í lófa, nudda saman og draga andann djúpt að sér. Sem ilmvatn: Sumar ilmkjarnaolíur má nota í mjög þynntri blöndu sem náttúrulegan ilm á húð. Varúð Þynnið fyrir notkun á húð. Ekki til inntöku. Forðist snertingu við augu og slímhúð. Getur ert viðkvæma húð – þynnið vel og prófið á litlu svæði fyrst. Hættið notkun ef erting kemur fram. Leitið ráða hjá lækni á meðgöngu.
Virk efni: M.a. myrcen, citronellan, geranyl acetat, nerol, geraniol og neral. Varúð: Getur ert húð og ætti því alltaf að þynna mjög vel.