Rósaberjaolía 10 ml
Næringarrík rósaberjaolía rík af nauðsynlegum fitusýrum sem styður við mýkt, teygjanleika og ljóma húðar.
Rósaberjaolía (Rosa canina) er kaldpressuð og náttúrulega rík af nauðsynlegum fitusýrum sem styðja við húðbarrier og mýkt húðar. Hún hentar vel fyrir þurra, veðraða og viðkvæma húð sem þarfnast næringar og jafnvægis.
Olían er gjarnan valin þegar unnið er með að bæta áferð húðar og draga úr sýnileika fínna lína og ójafnrar áferðar. Hún smýgur vel inn, skilur ekki eftir sig þunga áferð og hentar einnig á svæði þar sem húð er þynnri, svo sem í kringum augu og varir.
Rósaberjaolía er einnig notuð á húð sem hefur farið í gegnum breytingar og þarfnast uppbyggingar og stuðnings við teygjanleika.
Virk efni: Fitusýrur (m.a. oleic, linoleic og linolenic), A- og C-tengd plöntusambönd, flavóníðar og karótenóíðar.
Geymið í kæli. Berið á húð eftir þörfum.
Rosa canina (rose hip) seed oil. (100% kaldpressuð rauð Rósaberjaolía).