Fara í meginmál

Rósa ilmkjarnaolía 10 ml

Rík og blómleg olía með djúpum og hlýlegum tónum. Skapar mjúkt, jafnvægisgefandi og fágað andrúmsloft.Tilvalin í ilmlampa, bað, nuddolíu eða sauna.

Rósa ilmkjarnaolía hefur ríkulegan, djúpan og blómlegan ilm sem tengist mýkt, hlýju og ró. Hún er vinsæl í ilmblöndum þegar óskað er eftir hlýlegu og jafnvægisgefandi andrúmslofti.

Olían hentar vel í ilmlampa, bað og í þynntri blöndu sem ilmur á húð. Í húðvörum er hún notuð í mjög þynntri blöndu til að styðja við mýkt og ljóma húðar, sérstaklega við viðkvæma eða þroskaða húð.

Rós blandast fallega við lavender, frankincense og sítrusolíur og gefur ilmblöndum dýpt og fágun.

Virk efni: M.a. citronellol, geraniol, nerol, farnesol, linalool, nonanal, eugenol og rose oxíð.

Í ilmlampa/diffuser: 3–5 dropar Í bað: 5-10 dropar blandaðir í burðarolíu, salt eða mjólk Í nudd: 5 dropar í 10 ml burðarolíu Innöndun: 3–5 dropar í skál af heitu vatni. Andið rólega að ykkur ilminum í nokkrar mínútur. Einnig er hægt að setja einn dropa í lófa, nudda saman og draga andann djúpt að sér. Sem ilmvatn: Sumar ilmkjarnaolíur má nota í mjög þynntri blöndu sem náttúrulegan ilm á húð. Varúð Þynnið fyrir notkun á húð. Ekki til inntöku. Forðist snertingu við augu og slímhúð. Hættið notkun ef erting kemur fram. Leitið ráða hjá lækni á meðgöngu.

Prunus amygdalus dulcis (almond) oil, Rosa damascena flower oil, Citronellol, Eugenol, Farnesol, Geraniol, Geranyl acetate, Isoeugenol, Linalool.