Fara í meginmál

Möndluolía 100 ml

Möndluolía er mild og næringarrík jurtaolía unnin úr Prunus dulcis, þekkt fyrir að mýkja og næra húðina á náttúrulegan hátt. Hún hentar öllum húðgerðum og er sérstaklega góð fyrir þurra og viðkvæma húð.

Olían smýgur vel inn í húðina og skilur hana eftir mjúka, teygjanlega og vel nærða. Hún er vinsæl sem grunnur í nuddolíur og húðvörur og hentar vel bæði ein og sér eða sem hluti af daglegri umhirðu.

Rík af fitusýrum (m.a. oleic og linoleic), A-, B-, D- og E-vítamínum ásamt steinefnum á borð við magnesíum og kalsíum.

Berist á andlit og líkama. Hægt að nýta til snyrtivörugerðar.

Prunus amygdalus (almond) dulcis oil (100% Möndluolía).