Fara í meginmál

Magnesíum freyðitöflur með sítrónubragði

Magnesíum frá Gula miðanum er fæðubótarefni í formi freyðitaflna með sítrónubragði. Tvær töflur innihalda samtals 375 mg af magnesíum sem stuðlar að eðlilegri starfsemi vöðva og taugakerfis.

B13394

Magnesíum frá Gula miðanum inniheldur magnesíum í þægilegu freyðitöfluformi með sítrónubragði.

Magnesíum er mikilvægt steinefni sem stuðlar að eðlilegri starfsemi vöðva og taugakerfis, eðlilegum orkuefnaskiptum og viðhaldi eðlilegra beina og tanna. Það hjálpar einnig til við að draga úr þreytu og þróttleysi og stuðlar að eðlilegu jafnvægi blóðsalta.

Töflurnar leysast upp í vatni og eru því þægilegur valkostur fyrir þá sem kjósa að taka fæðubótarefni í drykkjarformi.

Helstu eiginleikar:

Inniheldur 375 mg af magnesíum í tveimur töflum.

Stuðlar að eðlilegri starfsemi vöðva og taugakerfis.

Hjálpar til við að draga úr þreytu og þróttleysi.

Með sítrónubragði.

20 freyðitöflur í pakkningu.

Tvær töflur á dag, hvor fyrir sig leyst upp í glasi af vatni (200 ml).

Sýra (sítrónusýra), sýrustillir (natríumbíkarbónat, magnesíumkarbónat), umfangsaukandi efni (sorbitól), bragðefni, sætuefni (súkralósi), litarefni (ríbóflavín).