Lemon ilmkjarnaolía 10 ml
Ferskur og frískandi sítrónuilmur sem lífgar upp á andrúmsloftið.
Hrein sítrónu ilmkjarnaolía með léttum, ferskum og frískandi sítrusilm. Ilmurinn er upplífgandi og hreinn og hentar vel til að skapa bjart og notalegt andrúmsloft. Sítrónuolía er vinsæl í ilmmeðferð og er góð þegar óskað er eftir ferskum ilmi.
Bætið 3–5 dropum í ilmdreifara samkvæmt leiðbeiningum tækisins. Fyrir nudd skal þynna olíuna í burðarolíu áður en hún er borin á húð. Ekki nota óþynnta olíu á húð eða taka inn. Forðist snertingu við augu. Þar sem olían er unnin með kaldpressun úr berki sítrónunnar skal forðast beina sólarljósa- og útfjólubláa geislun á húð þar sem olían hefur verið borin á.
100% hrein sítrónu ilmkjarnaolía (Citrus limon), unnin með kaldpressun úr berki sítrónunnar.