Fara í meginmál

Íslenskt Astaxanthin

Astaxanthin eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar. Það er talið nærandi og styrkjandi fyrir húðina og vernda hana fyrir skaðlegum geislum sólarinnar.

Astaxanthin er náttúrulegt karótenóíð sem gefur laxi, rækjum og flamingóum hinn fallega bleika lit. Það er einnig talið eiga þátt í ótrúlegu þoli og krafti laxa þegar þeir synda langar vegalengdir og stökkva upp straumhörð fljót.

Astaxanthin hefur vakið mikla athygli á síðustu árum vegna einstaklega öflugra andoxunareiginleika sinna. Sumir rannsakendur telja andoxunarvirkni þess geta verið margfalt sterkari en hjá mörgum öðrum þekktum andoxunarefnum, þar á meðal C-vítamíni. Með því að vinna gegn oxunarálagi getur astaxanthin stutt við almenna heilsu og vellíðan.

Astaxanthin er vinsælt meðal íþróttafólks og þeirra sem lifa virkum lífsstíl, þar sem rannsóknir benda til að það geti stutt við orkubúskap líkamans, aukið þol og stuðlað að betri endurheimt eftir áreynslu. Einnig er það talið geta stutt við heilbrigði liða, augna og húðar. Margir nota astaxanthin til að styðja við rakastig og teygjanleika húðarinnar og vernda hana gegn áhrifum umhverfisþátta.

Astaxanthin í þessari vöru er unnið úr smáþörungnum Haematococcus pluvialis, sem er ein ríkasta náttúrulega uppspretta astaxanthins sem þekkist. Þannig færðu hreint og öflugt astaxanthin úr náttúrulegum uppruna.

1 perla á dag með mat

Virk efni: Astaxanthin (Astalíf - úr Haematococcus plusvialis örþörungum) D alfa tókóferól (E-vítamín), lífræn sólblómaolía. Fylliefni: safflóraolía. Jurtahylki.