Fara í meginmál

Hörfræolía 473 ml

Hágæða lífræn olía með hreinu og mildu hnetubragði. Barlean’s er mest selda lífræna hörfræolían í heiminum.

JA1207

Barlean’s hörfræolían er hágæða lífræn olía með hreinu og mildu hnetubragði. Hún inniheldur 7.640 mg af plöntubundinni ALA Omega-3 fitusýru í hverri matskeið.

Omega-3 fitusýrur eru lífsnauðsynlegar, en líkaminn getur ekki framleitt þær sjálfur. Því þarf að fá þær úr fæðu eða fæðubótarefnum. Hörfræ teljast ein besta plöntubundna uppspretta Omega-3. Barlean’s hörfræolían er margverðlaunuð, óhreinsuð og lífræn olía sem framleidd er í Bandaríkjunum. Hún er varin gegn hita, ljósi og lofti frá fræi til flösku til að tryggja hámarks ferskleika og gæði. Barlean’s er mest selda lífræna hörfræolían í heiminum.

Helstu kostir: • Rík af ALA Omega-3 fitusýrum: 7.640 mg í hverri matskeið • Lífrænt vottað (USDA), án erfðabreyttra innihaldsefna (non-GMO), glútenlaus og kosher • Kaldpressuð og varin gegn lofti og ljósi • Hægt að taka beint með skeið eða blanda í salatsósur, jógúrt, hafragraut eða smoothie.

Ráðlagður dagskammtur er 1–2 matskeiðar (15–30 ml) á dag. Hrista flöskuna vel fyrir notkun. Má taka eina og sér eða blanda út í smoothie, jógúrt, hafragraut eða salatsósu. Geymist í kæli eftir opnun. Ekki er mælt með að nota olíuna við steikingu eða eldun við háan hita.

Lífræn hörfræolía (Linum usitatissimum).