Fara í meginmál

Fótanæring smyrsli 60 ml

Fótanæring er öflugt jurtasmyrsl þróað af Kolbrúnu grasalækni ætlað fyrir fætur sem eru þurrir, sprungnir eða með sár sem taka tíma að gróa. Smyrslið er hannað til að mýkja húðina og styðja við gróanda.

Formúlan byggir á nærandi smjörum og olíum á borð við bývax, kakósmjör, shea smjör og vallhumalsolíu sem hjálpa til við að halda raka og vernda húðina. Rannsóknir benda til sýklahemjandi efna (m.a bakteríu- og sveppadrepandi)í Neem á meðan cayenne styður við aukið blóðflæði og hlýjandi áhrif á húðina. Helstu virku efnin: Gamma azulin , nimbidín, nimdín og kapsaísín.

Hentar vel á sprungna hæla, þurr svæði og sár þar sem húðin þarfnast aukinnar umhirðu og verndar.

Berist á húð 2svar sinnum á dag

Helstu virku efnin: Gamma azulin , nimbidín, nimdín og kapsaísín.