B12-vítamín – með fólinsýru og B-6
Stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum og starfsemi taugakerfis
B12-vítamín er eitt mikilvægasta vítamín líkamans og gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu, taugakerfi og blóðmyndun. B12-sugutöflur eru þægileg leið til að auka inntöku vítamínsins þar sem þær leysast upp í munni og frásogast auðveldlega.
B12-vítamín stuðlar að eðlilegum orkuefnaskiptum og hjálpar til við að draga úr þreytu og orkuleysi. Það gegnir einnig mikilvægu hlutverki í starfsemi taugakerfisins og getur stutt við andlega líðan, einbeitingu og almenna vellíðan.
B12-vítamín er nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðmyndun og tekur þátt í myndun rauðra blóðkorna. Auk þess styður það við eðlilega starfsemi hjarta- og æðakerfisins með þátttöku sinni í efnaskiptum hómócýsteins. Margir finna einnig fyrir aukinni orku, betri svefni og bættri meltingu þegar B12-birgðir líkamans eru í jafnvægi.
B12-vítamín er mikilvægt fyrir endurnýjun frumna og getur þannig stutt við heilbrigða húð, sterkt hár og hraustar neglur.
1 tafla á dag með máltíð
Virk efni (pýridoxínhýdróklóríð, sýanókóbalamín, terónýlmónóglútamínsýra). Bindiefni (dikalsíumdifosfat, örkristallaður sellulósi), Sterkja (korn), kekkjavarnarefni (sterínsýra, magnesíumsterat, kísildioxíð)