Endursendingar og vöruskil
Endursending lyfja
Til að Heilsa samþykki skil á lyfjum þarf að:
Hafa samband við ábyrgðahafa Heilsu með tölvupósti á qp@heilsa.is áður en lyf eru send til baka.
Fylla út endursendingarseðil og láta hann fylgja með endursendingunni.
Tilgreina ástæðu endursendingar.
Staðfesta að lyfin hafi verið geymd við viðeigandi geymsluaðstæður frá móttöku, eftir því sem við á.
Lyfin skulu send til Heilsu, Bæjarflöt 1, 112 Reykjavík, í lyfjakassa ásamt hitasírita. Flutningur skal fara fram með flutningsaðila sem hefur verið samþykktur af Heilsu.
Heilsa endurgreiðir lyf sem seld eru með minna en 6 mánaða fyrningu berist þau innan mánaðar frá fyrningu.
Heilsa endurgreiðir lyf vegna galla.
Heilsa endurgreiðir lyf vegna skemmda ef athugasemdir berast innan viku frá afhendingu.
Endursending vara
Endursendingar og vöruskil (gildir ekki um lyf).
Eftirfarandi reglur gilda um endursendingar vara til Heilsu. Fyrirspurnir um endursendingar má senda á netfangið heilsa@heilsa.is
Almenn skilyrði fyrir endursendingum
Endursendingarseðill skal fylgja öllum endursendum vörum. Á seðlinum skal koma fram reikningsnúmer ef endurgreiðsla á við.
Sending skal vera greinilega merkt nafni sendanda.
Heilsa tekur aðeins við endursendum vörum af þeim ástæðum sem tilgreindar eru hér að neðan, nema annað hafi verið sérstaklega samið um fyrirfram.
Ekki er veitt endurgreiðsla fyrir fyrndar vörur nema sérstaklega hafi verið samið um það við söluaðila.
Vörur sem berast skemmdar eða reynast gallaðar eru endurgreiddar að fullu, að því gefnu að greinargóð lýsing á skemmdinni eða gallanum fylgi endursendingunni.
Athugið: Ef verðmæti gallaðrar, skemmdrar eða fyrndrar vöru er undir 15.000 kr. skal hafa samband við Heilsu á heilsa@heilsa.is. Heilsa veitir þá leiðbeiningar um hvort senda eigi vöruna til baka eða farga henni.
Ef vara hefur verið innkölluð er hún endurgreidd að fullu, að því gefnu að henni sé skilað innan eins mánaðar frá útgáfu innköllunartilkynningar.
Hægt er að skila vöru sem pöntuð hefur verið fyrir mistök, að því gefnu að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:
Varan skal geymast við stofuhita.
Skil skulu fara fram innan viku frá afhendingu og í samráði við þjónustufulltrúa Heilsu.
Varan skal vera í órofinni upprunalegri pakkningu frá framleiðanda.
Útfylltur endursendingarseðill skal fylgja vörunni.
Flutningur skal fara fram með flutningsaðila sem hefur verið samþykktur af Heilsu.
Ef mistök verða við afgreiðslu af hálfu Heilsu verða þau leiðrétt án tafar og kaupanda að kostnaðarlausu.
Vörur sem hafa verið afhentar fyrir mistök skulu þó endursendar innan viku frá afhendingu.
Vörur sem skemmast í flutningi eru endurgreiddar að fullu, að því gefnu að þær séu endursendar innan viku frá afhendingu.
Flutningur skal hafa farið fram með flutningsaðila sem hefur verið samþykktur af Heilsu.