Fara í meginmál
Ný vítamínsprey frá Gula Miðanum

Ný vítamínsprey frá Gula Miðanum

Nýja vörulínan er fyrsti áfanginn í spennandi verkefni sem við höfum verið að vinna að síðustu mánuði, í tilefni þess að Guli miðinn fagnar 40 ára afmæli á þessu ári 🎂

Nýja línan samanstendur af:

  • B12 Súper

  • D3 Súper– 3000 AE

  • D3 barnasprey – 400 AE

  • Járn + C-vítamín + fólat

  • Melatónín munnúði

Við erum sérstaklega ánægð að bæta vítamínum og fæðubótarefnum í spreyformi við úrvalið okkar.

Af hverju vítamínsprey?

Hefðbundnar vítamíntöflur henta mörgum vel, en ekki öllum. Sumum finnst erfitt að kyngja töflum og hylkjum, aðrir gleyma þeim auðveldlega og fyrir fjölskyldur getur verið þægilegt að hafa fleiri valkosti.

Vítamínsprey býður upp á einfalt og handhægt form. Það er auðvelt í notkun, tekur lítið pláss og er þægilegt að hafa með sér. Það getur því verið auðveldara að gera vítamínin að hluta af daglegri rútínu.

Hvort sem þú átt erfitt með að kyngja töflum, ert mikið á ferðinni eða einfaldlega kýst spreyformið, þá er nú hægt að finna fleiri valkosti hjá Gula miðanum.

Við hlökkum til að kynna ykkur nýju vítamínspreyin – einfalt viðbótarskref í daglegri rútínu.

Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar fæðu og heilbrigðs lífsstíls. Fylgið ávallt ráðlögðum dagskammti og leiðbeiningum á umbúðum.