Fara í meginmál

Heilsuperla vikunnar 23.-29. nóvember

✨ Heilsuperla vikunnar ✨

Í hverri viku beinum við kastljósinu að einni sérstakri vöru úr vöruúrvali Heilsu – Heilsuperlu vikunnar!

Þetta eru vörur sem okkur finnst eiga skilið aðeins meiri athygli. Þannig færðu tækifæri til að kynnast vörunum okkar betur og jafnvel uppgötva nýtt uppáhald!

Og það besta? Þú átt möguleika á að eignast Heilsuperlu vikunnar!

Á Instagram-síðunni okkar getur þú tekið þátt með því að skrifa nafnið þitt í athugasemd við færslu vikunnar. Í lok hverrar viku drögum við út einn heppinn þátttakanda sem fær Heilsuperlu vikunnar að gjöf!

Fylgstu með okkur á Instagram, kynntu þér Heilsuperlu vikunnar og taktu þátt!

Baby Balm, nærandi salvi er Heilsuperla vikunnar 23. - 29. nóvember

Frábært smyrsl fyrir extra þurra húð en það inniheldur ávaxta þykkni sem sefar þurra og sprungna húð.

Fullkomið í veðurbreytingum og hentar því íslenskri veðráttu mjög vel. Gott á húðina í miklum kulda og frosti og frábært á t.d. húð sem verður þurr eftir klór í sundlauginni.

En það inniheldur ekkert vatn svo þetta er fullkomið kuldakrem.

Fullorðnir geta einnig notað þetta krem í veður íþróttum eins og skíðum til að vernda húðina gegn kulda og veðurbreytingum.