
Heilsa Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Við erum stolt að segja frá því að Heilsa ehf. er í hópi þeirra 2,5% íslenskra fyrirtækja sem uppfylla ströng skilyrði greiningar Creditinfo á Framúrskarandi fyrirtækjum 2026.
Við erum sérstaklega stolt af því að Heilsa hefur verið í þessum hópi samfellt frá árinu 2013. Viðurkenningin er því enn ein staðfestingin á traustum og ábyrgum rekstri og þeim sterka grunni sem byggður hefur verið upp í meira en hálfa öld.
Þennan árangur eigum við fyrst og fremst okkar frábæra starfsfólki að þakka. Með fagmennsku, metnaði og öflugu samstarfi vinnur það á hverjum degi að því að gera vandaðar vörur á sviði heilsu og vellíðanar aðgengilegar landsmönnum.
Við viljum jafnframt þakka viðskiptavinum okkar, birgjum og samstarfsaðilum fyrir traustið og gott samstarf í gegnum árin.
Við erum stolt af árangrinum og hlökkum til að halda áfram að byggja upp öflugt fyrirtæki sem stuðlar að bættri heilsu og vellíðan.
Áfram Heilsa!
