
Guli miðinn x Algalíf
Guli miðinn hefur um árabil verið stoltur söluaðili á íslensku astaxanthini frá Algalíf. Algalíf er íslenskt líftæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á náttúrulegu astaxanthini úr örþörungum.
Á dögunum heimsóttum við verksmiðju Algalíf á Ásbrú og fengum að skyggnast á bak við tjöldin og sjá hvernig þetta áhugaverða hráefni er unnið. Það var virkilega spennandi að fá innsýn í þá sérhæfðu tækni, þekkingu og vinnu sem liggur að baki framleiðslunni.
Astaxanthinið frá Algalíf er unnið úr örþörungnum Haematococcus pluvialis, sem er þekkt náttúruleg uppspretta astaxanthins. Astaxanthin er náttúrulegt litarefni úr hópi karótenóíða sem vekur mikinn áhuga í vísindasamfélaginu vegna andoxunareiginleika sinna og er meðal annars rannsakað með tilliti til hlutverks þess í tengslum við oxunarálag í líkamanum.
Algalíf leggur áherslu á nýsköpun, gæði og sjálfbæra framleiðslu og er frábært dæmi um hvernig íslensk þekking og tækni getur skapað verðmæti sem vekja athygli á alþjóðavísu.
Það er því sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að Algalíf hlaut verðlaunin Marketing Initiative of the Year á NutraIngredients-Asia Awards 2026 fyrir markaðsverkefni sitt tengt Astalíf™. Við óskum teyminu hjá Algalíf innilega til hamingju með þessa alþjóðlegu viðurkenningu!
Við hjá Gula miðanum erum stolt af samstarfinu við Algalíf og af því að geta boðið viðskiptavinum okkar astaxanthin frá íslenskum framleiðanda sem leggur áherslu á sérþekkingu, gæði og nýsköpun.
