Fara í meginmál
Af hverju hreyfir þú þig? Sumarherferð Heilsu

Af hverju hreyfir þú þig? Sumarherferð Heilsu

Það er gaman að leiða hugann að því hvað það er sem hreyfingin gefur okkur. Fyrir utan það að bæta heilsuna þá eru mismunandi persónulegir hvatar og ávinningur sem drífur okkur áfram. 

Við hjá Heilsu erum stolt af þessu skemmtilega verkefni því við höfum byggt upp ótrúlega dýrmætt samfélag af fólki sem nýtir vörurnar okkar til að bæta heilsuna á einn eða annan hátt og það er okkar hlutverk að mæta þeim þar sem þau eru stödd í sinni vegferð. Við nefnilega gerum allskonar hluti fyrir heilsuna á mismunandi forsendum. Flest okkar eru bara að reyna að halda á lofti þeim fjölmörgu boltum sem lífið býður uppá og það er ekki alltaf einfalt að koma hreyfingu inní daginn. Svo eru aðrir sem leggja hreyfinguna fyrir sig og eru fyrirmyndir fyrir okkur hin. Við hjá Heilsu erum stolt af því að geta stutt við afreksíþróttafólkið Elísu Kristins og Þorstein Roy, ultrahlaupara sem hafa náð yfirburðar árangri. Þessi litla auglýsing er einmitt tilkomin vegna samstarfsins og var megin markmiðið að hvetja fólk til að hugsa meira um heilsuna, á eigin forsendum. Stöldrum aðeins við og hugsum “af hverju hreyfi ég mig?”

Það var gríðarlega skemmtilegt að vinna þessa herferð og við vonum að hún sé jafn hvetjandi fyrir ykkur og hún var fyrir okkur. 

Við þökkum draumateyminu fyrir frábært samstarf:

https://www.instagram.com/reel/DZHOfsLNhTi/?utm_source=ig_web_copy_link&igsh=MzRlODBiNWFlZA==

🎥📷 @sigurdurpetur_

🏃‍♀️ @elisakristins

🏃@thorsteinnroy