Fara í meginmál
Cosrx

Cosrx

Áhersl­urn­ar hjá COSRX eru fá inni­halds­efni, há­marks virkni.

COSRX var stofnað árið 2013 og varð fljótt heillandi vörumerki. Áherslurnar hjá COSRX eru fá innihaldsefni, hámarks virkni. Þessi nálgun vinnur á áhrifaríkan hátt á allskyns húðvandamálum og hver og einn getur sett saman sína fullkomnu húðrútínu.

COSRX telur að snyrtivörur eigi að gefa meira en bara ytri fegurð og eru staðráðin í að gera einstaklingum kleift að finna lausnir í samræmi við persónuleg húðvandamál. Markmiðið er að hjálpa viðskiptavinum að öðlast sjálfstraust og að finna sína eigin einstöku fegurð innra með sér.

Nafnið COSRX merkir COSmetics (snyrtivörur) + RX (lyfsseðilsskyld lyf)

COSRX er selt víðsvegar um heiminn og hafa unnið til fjölmargra verðlauna fyrir hágæða húðvörur.

RX1005

Advanced Snail 92 All In One Cream

Ríkulegt gelkrem sem fer samstundis inn í húðina og veitir góða næringu þökk sé snígla slíminu. Formúlan vinnur á fyrstu merkjum öldrunar, dregur úr litablettum, veitir góðan raka og mikla næringu ásamt því að styrkja efsta lag húðarinnar.

RX1006

Advanced Snail 96 Mucin Power Essence

Essence með léttri áferð sem er auðgað með 96% síuðu sniglaslími. Gefur húðinni náttúrulegan ljóma og langvarandi raka.

RX1007

Advanced Snail Peptide Eye Cream

Létt augnkrem með tvíþætta viLétt augnkrem með tvíþætta virkni. Lýsir samstundis upp augnsvæðið ásamt því að veita mikinn raka. Hentar öllum húðgerðum og öllum aldri.rkni. Lýsir samstundis upp augnsvæðið ásamt því að veita mikinn raka.

RX1009

Advanced Snail 92 All In One Cream Túpa

Ríkulegt gelkrem sem fer samstundis inn í húðina og veitir góða næringu þökk sé snígla slíminu. Formúlan vinnur á fyrstu merkjum öldrunar, dregur úr litablettum, veitir góðan raka og mikla næringu ásamt því að styrkja efsta lag húðarinnar.

RX1010

Adv Snail Mucin Power Gel Cleanser

Setjið hóflegt magn í lófann og látið freyða. Berið á húð með hringlaga hreyfingum og skolið svo af með volgu vatni.

RX1011

Advanced Snail Radiance Dual Essence

2in1 serum sem veitir margvíslegan ávinning á húð. Styrkir, stinnir og veitir hámarks raka og samstundis ljóma. Hentar öllum húðgerðum.

RX1012

1.0 Line BHA Blackhead Power Liquid

BHA og Niacinamide vökvi sem veitir milda flögnun og endurnýjun húðar ásamt því að stjórna olíuframleiðslu. Mælt með fyrir þá sem hafa notað vörur áður sem innihalda sýrur. Gott að nota á T-svæðið og hentar vel fyrir olíukennda húðgerð.

RX1013

1.0 Line AHA 7 Whitehead Power Liquid

Andlitsvatnið er samsett með 7% AHA sýrum sem hjálpa til við flögnun á mildan hátt samhliða því að veita ljóma og jafnara yfirbragð. Mælt með fyrir þá sem hafa notað vörur áður sem innihalda sýrur. Gott fyrir grófa og ójafna húð sem þarfnast ljóma og þá sem vilja vinna á hvítum bólum/nöbbum.

RX1014

1.0 Line AHA/BHA Clarifying Toner

Andlitsvatn samsett með AHA+BHA sýra sem bæta áferð húðarinnar, auka orku og draga saman húðholur. Fjarlægir óhreinindi, veitir flögnun og eykur rakamyndun allt í einu skrefi. Gott að nota dagelga fyrir hámarks árangur. Hentar öllum húðgerðum þ.m.t viðkvæm húð

RX1015

1.0 Line Two in One Poreless Power Liq

2in1 andlitsvatn sem vinnur á að þétta húðina og draga saman húðholur. Hún verður jafnari og sléttari og hentar þetta því vel fyrir grófa og líflausa húð sem er með opnar húðholur.

RX1016

1.0 Line Low pH GM Gel Cleanser

Mildur hreinsir til að nota eftir að farði hefur verið fjarlægður. Formúla sem vinnur á að stilla rakajafvægi og olíuframleiðslu húðar. Endurheimtar pH gildi húðar. Hentar öllum húðgerðum.

RX1045

#One Step Moisture Up Pad 70stk

Bómullarskífa í stað andlitsvatns sem hreinsar varlega dauðar húðfrumur og óhreinindi ásamt því að veita húðinni mikinn raka og sléttara yfirborð með innihaldsefnum á borð við BHA og PHA. Hentar þurri og líflausri húð.

RX1044

#Master Patch X-Large

Plástur á bólusvæði sem græðir og hreinsar húðina. Vinnur á stærra svæði vegna stærð plástrarins. Inniheldur Niacinamide sem hjálpar til við að draga upp óhreinindi úr bólunni.

RX1042

#Master Patch Basic

Hringlaga plástur til að draga úr vökva í húðholum. Hjálpar til við að draga úr bólumyndun og sýkingum.

RX1041

Master Patch Clear Fit (Cosmetic)

Plástrar frá CosRx sem vernda vandamálasvæði frá því að versna en viðhalda raka í húðinni til að koma í veg fyrir frekari útbrot. Dregur úr framleiðslu óhreininda, kemur í veg fyrir öramyndun og verndar svæðið. Hentar olíu mikilli og bólóttri húð.

RX1040

Master Patch Original Fit (Cosmetic)

Plástrar sem vernda vandamálasvæði frá því að versna en viðhalda raka í húðinni til að koma í veg fyrir frekari útbrot. Hentar olíu mikilli og bólóttri húð. #24 stk

RX1038

Master Patch Intensive

Þægileg blettameðferð frá CosRx til að leysa óvænt útbrot. Master Patch Intensive blandast fullkomlega inn í hvaða húðlit sem er fyrir heilbrigt útlit.

Advanced Snail 96 Mucin Power Essence

Essence TRAVEL frá CosRx með léttri áferð sem er auðgað með 96% síuðu næringarríku sniglaslími sem gefur húðinni náttúrulegan ljóma og langvarandi raka.

Advanced Snail 96 Mucin Power Essence

Ávinningur af notkun eru minnkuð ásýnd dökkra bletta, bætt húðáferð, spornun gegn öldrun húðar og djúpur raki. Vinnur á líflausri og grófri húð, dökkum blettum og örum og róar skemmda húð.

The AHA2 BHA2 Blemish Treat. Serum

2% AHA og 2% BHA blettameðferð með hreinum bómullar kúlum sem róa samstundis unglingabólur og vinnur á fílapenslum og hvítum bólum/nöbbum. Gott fyrir óhreina og grófa húð.