Allir sjúkdómar hefjast í meltingarvegi. Svo spaklega mælti Grikkinn Hippocrates, guðfaðir nútíma læknisfræði fyrir meira en tvö þúsund árum síðan. Mér finnst þetta samt hljóma betur ef þessu er snúið við, þ.e. góð heilsa hefst í meltingarvegi. Það er því miður ansi algengt að fólk líti framhjá mikilvægi heilbrigðs meltingarvegar, jafnvel þó hann innihaldi tíu sinnum fleiri bakteríur en við höfum af eigin frumum í líkama okkar. Það má því segja af kímni að við séum í raun meiri bakteríur en manneskjur.
Mikilvægt er að uppistaða bakteríuflórunnar séu góðgerlar. Í grunninn er það svo, en nútíma lífsstíll getur valdið röskun á flórunni. Má þar nefna reykingar og áfengisneyslu, ýmsan skyndibita, of mikið að unnum sykri og gervisætum, sýklalyf og langvarandi streita.
Mikilvægast af öllu er að tileinka sér hollt og gott mataræði, borða ferskan mat eins og náttúran gefur. Líkamsrækt er einnig afar mikilvæg og getur eflt líkama okkar og styrkt ónæmiskerfið. Útivist í náttúrunni og hugleiðsla getur síðan hjálpað til gegn streitu. Þessu til viðbótar getur verið gott að taka inn góðgerla í fæðubótaformi til að koma jafnvægi á þarmaflóruna og fyrir vikið að styrkja ónæmiskerfið sem í senn getur aukið athygli og hjálpað til gegn depurð.
Ég mæli með góðgerlum frá Optibac. Optibac sérhæfir sig sérstaklega í góðgerlum og vörurnar þeirra eru vottaðar af klínískum rannsóknum og hafa sannaða virkni. Hægt er að taka hylkin inn eða opna þau og setja í boostið eða út á grautinn.
Optibac Every day
Innihalda 5 milljarða af góðgerlum og trefjar að auki. Góðgerlarnir eru sýruþolnir og þola því ferðalagið niður í þarmana. Þar dreifa þeir sér um allt meltingarkerfið og búa til öfluga og vinveitta flóru.
Optibac for women
Gerlaflóran í meltingunni er gríðarlega mikilvæg en það sama gildir um leggöngin og kynfærasvæðið. Vandamál getur skapast ef ójafnvægi myndast í flórunni. Góðgerlarnir byggja upp heilbrigða flóru og koma á jafnvægi.
Optibac for babies and children
Hágæða góðgerlablanda fyrir börn frá fæðingu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að inntaka getur dregið úr líkum á ýmsum sýkingum og á sama tíma stytt þann tíma sem tekur að komast yfir veikindi. Blandan hjálpar einnig til við meltingarvandamál.
Heilsukveðja,
Víðir Þór Þrastarson
Íþrótta- og heilsufræðingur
Optibac fæst í apótekum, heilsuvöruverslunum og í netverslun Heilsuhússins og Lyfju.