Aromastick er lítill plast stautur, á stærð við varasalva. Hver og einn inniheldur 100% lífrænar ilmkjarnaolíur til innöndunar án allra aukaefna.
Í línunni eru 6 blöndur, hver með sinn tilgang:
Balance: Piparmynta, cypress, geranium og engifer
- Fyrir jafnvægi, örvar og róar á sama tíma. Gott þegar álag er mikið og þú þarft að halda fókus og ró.
Calm: Bergamot, lemon, cedarwood, clary sage og vetiver
- Róandi og sefandi fyrir líkama og sál. Gott að hafa við höndina þegar álag og streita herja á.
Relax: Lavender, mandarin og vetiver.
- Þessi er frábær fyrir svefninn en má nota hvenær sem þú þarft að ná innri ró.
Energy: Piparmynta, greipaldin, rósmarín.
- Hvenær sem þig vantar smá auka orku. Frábært fyrir íþróttafólk og fólk í líkamlega erfiðri vinnu.
Focus: Piparmynta, rósmarín og kanilolía.
- Þegar þú þarft hámarks athygli og fókus. Hvort sem þú ert að læra fyrir próf, klára krefjandi verkefni eða leysa flókið vandamál er þetta blandan fyrir þig.
Refresh: Eucalyptus og menthol
- Frábær blanda þegar kvef og stíflað nef er að hrjá þig. Frískar og hressir.
AromaStick eru hannaðar af fólki með mikla þekkingu á virkni ilmkjarnaolía og þær hafa töluvert af klínískum rannóknum á bakvið sig.
Þú mátt nota Aromastick eins oft og þú vilt en framleiðendur ráðleggja 6-8 skipti á dag til að fá sem besta virkni.
Aromastick fæst í verslunum Lyfju og Heilsuhússins