Drekkum vatn

Ég tel það ákaflega mikilvægt að borða mat eins og náttúran gefur. Að hafa fæðuna í sinni hreinustu mynd, helst án allra auka- og uppfyllingaefna. Þetta á einnig við um drykki. Það vill svo til að við búum við eitt hreinasta og ferskasta vatn í heimi. Bara beint úr krana.

Þar er mikill peningur í drykkjum. Fjölmargir vilja græða á að selja sykrað og litað vatn. Maður í bransanum sagði mér að slegist væri um hillupláss fyrir drykki í stórverslunum. Ég tel mig ekki þurfa að telja upp skaðsemi sykraðra gosdrykkja sem og þeirra sem innihalda gervisætu en sífellt koma fram meiri gögn um það hversu skaðlegir þeir geta verið.

Því miður eru fjölmargir engan veginn nógu duglegir að drekka þennan undradrykk sem vatnið er. Alltof margir sötra bara kaffi og gos yfir daginn. Ávaxtasafar eru heldur ekki æskilegir, nema kannski nýpressaðir í hófi. Við eigum ekki að drekka hitaeiningar, ekki of mikið af þeim allavega og það er töluvert af sykri í einu glasi af pressuðum eplasafa. Það er kannski safi úr 4-6 eplum í einu glasi. En þá vantar trefjarnar og hluta af ensímunum til að líkaminn geti unnið almennilega úr næringunni og sykrinum. Leikandi er hægt að drekka eitt glas án þess að vera saddur en ímyndið ykkur að borða 4-6 epli, það er sko saðsamt.

Ég ítreka samt að það er allt í lagi að fá sér nýpressaðan safa og þeir sem eru að passa línurnar geta síðan notið þess að drekka holla safa og sleppt skyndibitanum í staðinn. Annars ætlaði ég ekki að fjalla um ávaxtasafa núna heldur fjallavatnið góða. Drekkum vel af vatni jafnt yfir daginn en leyfum okkur einstaka safa til tilbreytingar og næringar.

Hversu mikið vatn á að drekka fer eftir hverjum og einum. Ég tel að 2 lítrar séu fínt viðmið fyrir meðal manneskju. Fylgstu með og hlustaðu á líkamann, ef maður gerir ekki annað en að míga, þá er sennilega verið að drekka fullmikið. Ef pissið verður dökkt ertu að drekka of lítið. Of mikið er ekki of gott, það getur m.a ýtt undir of hraða útskiljun á vatnsleysanlegum vítamínum og sumum steinefnum. Vissulega er hægt að ofgera öllu og það getur verið hættulegt að drekka of mikið að vatni en til þess þarf að þamba heil ósköp og fólki er löngu farið að líða illa í maganum áður en það fer að valda einhverjum teljandi skaða.

Vatnsskortur er hins vegar verra mál enda er líkaminn háður vatni þegar kemur að svo mörgu. Öll okkar efnaskipti svo ekki sé talað um úrgangslosun eru háð því að nægilegt vatn sé til staðar. Fullorðinn einstaklingur er um 60% vatn. Spáum aðeins í það.

 

Drekkum vatn, vel af því og njótum þess !

Skál í botn

Kveðja

Víðir Þór

Íþrótta-og heilsufræðingur