Fara í meginmál
Innköllun á Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum.

Innköllun á Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum.

Heilsa ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla vörurnar Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum þar sem styrkur pýrrólízidín-alkalóíða mældist yfir hámarksgildi fyrir fæðubótarefni.

Heilsa hefur beint tilmælum til allra söluaðila GM Husk og GM Colon cleanser að taka vöruna úr sölu. Jafnframt er óskað eftir að viðskiptavinir skili vörunni til næsta söluaðila, Heilsu ehf. eða fargi henni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem er innkölluð:

Vörumerki: Guli miðinn

Vöruheiti: Husk og Colon cleanser

Strikamerki: 5690684004446 og 5690684000868

Vörunr: B10033 og 00COL

Innflytjandi: Heilsa ehf

Lotunúmer og best fyrir dagsetning: Husk: lota 25/16/11 best fyrir: 12.06.2028 , lota 25/24/11 best fyrir: 09.07.2028, lota 25/35/15 best fyrir: 16.9.2028, lota 25/50/17 best fyrir 23.4.2029

Colon cleanser: lota: 25/5/59 best fyrir: 23.04.2028, lota 061225 best fyrir : 10.09.2028

Neytendur sem keypt hafa Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum með framgreindum lotunúmerum eru beðnir um að neyta hennar ekki og geta þeir skila vörunni þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Heilsu ehf.

Ástæða innköllunar: Styrkur pýrrólízidín-alkalóíða er yfir hámarksgildi fyrir fæðubótarefni. Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í gegnum netfangið heilsa@heilsa.is