Fara í meginmál
Heilsuperla vikunnar 19.-25. október

Heilsuperla vikunnar 19.-25. október

✨ Heilsuperla vikunnar ✨

Í hverri viku beinum við kastljósinu að einni sérstakri vöru úr vöruúrvali Heilsu – Heilsuperlu vikunnar!

Þetta eru vörur sem okkur finnst eiga skilið aðeins meiri athygli. Þannig færðu tækifæri til að kynnast vörunum okkar betur og jafnvel uppgötva nýtt uppáhald! 💚

Og það besta? Þú átt möguleika á að eignast Heilsuperlu vikunnar! 🎁

Á Instagram-síðunni okkar getur þú tekið þátt með því að skrifa nafnið þitt í athugasemd við færslu vikunnar. Í lok hverrar viku drögum við út einn heppinn þátttakanda sem fær Heilsuperlu vikunnar að gjöf!

Fylgstu með okkur á Instagram, kynntu þér Heilsuperlu vikunnar og taktu þátt! ✨

Floradix - Fljótandi járn með völdum vítamínum er Heilsuperla vikunnar 19.-25. október

Floradix er fljótandi járn sem er vinsæl járnuppbót sem sameinar járn með völdum vítamínum, ávaxtaþykkni og jurtum.

Fljótandi formið er þægilegt í notkun og hentar þeim sem kjósa að taka járn sem vökva í stað taflna eða hylkja.

Járn stuðlar að eðlilegri myndun rauðra blóðkorna og hemóglóbíns, eðlilegum flutningi súrefnis í líkamanum og eðlilegri orkumyndun.

Járn stuðlar einnig að því að draga úr þreytu og þróttleysi og styður við eðlilega starfsemi ónæmiskerfisins og eðlilega hugræna getu.

Floradix er ætlað til daglegrar notkunar og er einfalt að mæla upp ráðlagðan dagskammt.