Heilsa býður viðskiptavinum sýnum snyrti og spavörur í heimsklassa. Vörur sem eru þekktar fyrir mikil gæði of flott úrval.

Academie, hágæða professional snyrtivörur sem eingöngu fást á snyrtistofum.

Allar vörulínur MÁDARA eru framleiddar úr lífrænt vottuðum jurtum og lausar við öll kemísk gerviefni eins og litarefni, ilmefni, jarðolíur paraben og önnur kemísk efni. MÁDARA er framleitt sérstaklega fyrir skandinavíska húð en napur vindur, kuldi og stanslausar veðrabreytingar getur farið illa með húðina.

  • SOS | Rakalínan fyrir þurra og viðkvæma húð.
  • DEEP MOISTURE | Krem fyrir allar húðgerðir fyrir alla fjölskylduna, nærir húðina og ver gegn skemmdum. Sérstaklega gerð fyrir kallt og þurrt loftslag. Góð fyrir útivistarfólk
  • SMART | Fyrir unga húð sem er að byrja að eldast +30 ára – fyrir fína línur, sjáanlegar/stækkaðar svitaholur, ójöfn áferð á húð.
  • TIME MIRACLE | Fyrir 40+, þroskaða húð. Birkivatn er megin innihaldsefni línunnar. Vinnur gegn öldrun, örvar endurnýjun húðfruma, eykur þéttleika og teygjanleika húðarinnar. Dregur úr línum. Ein öflugasta vörulína MÁDARA.
  • INFINITY | Fyrir allar húðgerðir, fyrir auma og viðkvæma húð. inniheldur hyalúronsýru sem stuðlar að rakajafnvægi. Ver gegn mengun og utanaðkomandi áreiti, vinnur gegn ertingu, minnkar roða og bólgur í húð. Gott fyrir exem og ofnæmiskennda húð.
  • SUPERSEED – Uppbyggjandi þurrolíur, Léttar og fara hratt inn í húðina. Gera við, byggja upp og næra húðina.

Mádara hefur unnið fjölda verðlauna fyrir húð-og förðunavörurnar sínar. Þar á meðal var Mádara valið „Best International Skincare Brand“ árið 2019 og 2020 á Beauty Shortlist Awards. Árið 2021 var það valið „Best Make Up Brand – Europe“ á Beauty Shortlist Awards.

MÁDARA, lífrænar hágæða húðvörur. Fást í Heilsuhúsinu, völdum verslunum Lyfju og á Beautybox.is

Alessandro eru naglavörur sem sérfræðingarnir nota. Öll naglalökk frá Alessandro eru „7-free“, sem þýðir að þau eru algerlega laus við eiturefni. Naglalökkin eru Vegan.

Alessandro naglalökkin og fylgihlutir fást í verslunum og netverslun Lyfju.

Alessandro er einnig með professional línu sem eingöngu er seld á snyrtisofum.

Benecos eru náttúrulegar og fallegar förðunar-og húðvörur sem innihalda lífræn innihaldsefni og eru BDIH* vottaðar. Vörurnar eru vegan.

*BDIH: Inniheldur ekki paraffin, paraben, silicon, PEG, tilbúin lit-,ilm eða rotvarnarefni.