Swedish Herbal Institute
Swedish Herbal Institute (SHI) var stofnað 1975 í þeim tilgangi að safna saman upplýsingum um lækningajurtir, framkvæma vísindalegar rannsóknir og þróa sérhæfðar vörur sem byggja á vísindalegum grunni. SHI eru sannfærðir um að jurtir sem hægt er að sanna að hafi jákvæð áhrif á heislufar munu í framtíðinni hafa mikil áhrif á lífsgæði almennings og heilsufar bæði í tengslum við hefðbundnar lækningar og einnig sem partur af daglegri umhirðu og ábyrgð einstaklinga á eigin lífi og heilsufari.
SHI vill meina að með nútíma biotækni muni leiða til virkari og öruggari vöru sem muni nýtast í nútíma heilsuvern. Einn þáttur er tiltölulega lág tíðni af alvarlegum aukaverkunum sem tengjast hefðbundnum lækninajurtum og lítil eituráhrif sem skýrast að hluta vegna þess að líkaminn hefur lært að melta þessi efni hratt og örugglega.
Gegnum árin hefur Swedish Herbal Institute safnað saman einstökum efnum (virkum jurtum) úr jurtaheiminum. Eftir 35 ára stanslausar rannsóknir og þróun hefur SHI einstaka þekkingu á kínískri virkni jurta og jurtavara. Swedish Herbal institute leggur mikið uppúr vöruþróun og býður viðskiptavinum einstakar vörur sem þar sem virni þeirra eru stuttar af klínískum rannsóknum.
Heilsa er í dag með 1 af vinsælustu vörum SHI á markaði á Íslandi sem byggir á jurtinni Burnirót, sem vex víða á Íslandi, en Burnirótin vex helst á Norðlægum heimskautasvæðum, og dregur hún enska nafnið af því eða Artic Root. Þessi vara heitir Original Arctic Root og er unnin úr burnirótinni og hafa þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á Burnirót eingöngu verið gerðar á þessari vöru.
Til stendur að bjóða uppá fleiri vörur innan tíðar frá SHI á Íslandi.
Sjá allar vörur frá Swedish Herbal Institute




