Beint á leiđarkerfi vefsins
Fara á forsíđu

Solaray vítamín

Nutraceutical's  byrjaði að framleiða og selja jurtavörur 1973, fyrstir í framleiðslu og markaðsetningu blandaðra jurta sem innihalda tvær eða fleiri jurtir með mótsvarandi verkun, þ.e. þær geta unnið saman en líka í sitthvoru lagi. Þetta var nýjung því að náttúrulegar jurtir voru ekki blandaðar saman heldur teknar hver fyrir sig. Frá upphafi hefur Solaray haft framleiðslu sína í hylkjum, en það býður upp á betri nýtingu á virkum efnum úr jurtunum og þær eru minna unnar.

Frá 1984 hefur Solaray verið framleitt sem heilar vörulínur, ekki eingöngu jurtir, heldur líka heilar línur af vítamínum og steinefnum. Solaray er orðið eitt vinsælasta og best þekkta vörumerki í bætiefnum innan Heilsuvörubransans og hefur öðlast góðan orðstír fyrir gæði, samkvæmni og vöruþróun. Solaray telur að gæði varanna og vöruþróun séu grundvöllur vaxtar og yfirburða á markaði. Þess vegna, hafa þeir skuldbundið sig til að rannsaka, þróa og kynna nýjar vörur sem uppfylla vísindalegar rannsóknir og mæta þörfum neytandans.

Með rannsóknum sínum og þróun, leita þeir eftir að uppfylla eftirfarandi

  • Prófa öryggi, hreinleika og styrkleika varanna
  • Ţróa áhrifaríkari og skilvirkari hjálpargögn til að framleiða innihaldsefnin og ná því besta sem mögulegt er út úr hráefninu
  • Ţróa aðferðir til að tryggja öryggi og sannreyna þéttleika innihaldsins í vörunum
  • Ţróa nýjar og betri umbúðir utan um vörurnar frá innsta kjarna til pakkninganna
  • Vöruþróun með nýjum vörum sem sameina þau hráefni sem til eru, eða nýjum hráefnum sem hægt er að nota til að útbúa nýjar vörur.

Viðhorf Nutraceutical's er að vera leiðandi, ekki eingöngu við að þróa nýjar og betrumbættar vörur, heldur líka til að tryggja að áhrifaríkustu aðferðirnar eru notaðar við framleiðslu og í gæða eftirliti.

Gæða eftirlits prógramm Nutraceutical's leitar eftir og tryggir yfirburða hámarks gæði á öllum vörum sem þeir framleiða og að þær séu framleiddar í samræmi við núverandi GMP staðla. Albesta hráefni fáanlegt í heiminum er notað í blöndurnar þeirra, farið er fram á að fá greiningar skirteini og uppruna vottorð frá hverjum einasta birgja sem verslað er við til að tryggja hreinleika framleiðslunnar.

Í framleiðsluferlinu er fylgst nákvæmlega með að eingöngu gæðahráefni sé notað til að tryggja hreinleika framleiðslunnar. Allt hráefni sem notað er fer í gegnum rannsóknir hjá rannsóknarstofum Nutraceutical's.  Þar er kannað hvort að efnin séu með rétta virkni, hvort að í þeim séu einhver eiturefni eða aukaefni sem geta eyðilagt virknina, eða hvort að um réttu efnin sé að ræða. Nýlega var tekin í notkun geislavirknimælir til að athuga hvort að jurtirnar hafi verið ræktaðar með geislum. Ef í ljós kemur að eitthvað er að vörunni er hún endursend og hráefnið rannsakað sérstaklega vel þegar næsta sending kemur frá sama birgja. Engar vörur eru sendar frá Nutraceutical's til smásala eða neytenda nema þær hafi staðist allar gæðaprófanir.

Framleiðslan er eins og sést á ofangreindu mjög nákvæm og engin mistök eiga að komast í gegnum gæðaeftirlitið.

Solaray varan skiptist í 4 flokka sem þekkjast í sundur á lokunum á boxunum.

Blá lok, það eru fyrstu Solaray vörurnar, jurtablöndur.

Gul lok, 100 % lífrænar jurtir.

Rauðbrún lok, þar er ákveðin prósenta af virku efnunum í hverju hylki.

Hvít lok, algengustu vítamín og bætiefni

Græn lok, heilar hreinar jurtir

Dökk græn lok, Sunny Green línan er græn hollusta, úr ferskvatns - og sjávar þörungum. Fullt af steinefnum og vítamínum.

Sjá allar vörur frá Solaray vítamín


Forsíđa:

Vörur

Toppmynd

Nánar um Maldon

Stjórnborđ

Minnka letur Stćkka letur Hamur fyrir sjónskerta