Móđir Jörđ
Fyrirtækið Móðir jörð í Vallanesi á Fljótsdalshéraði hefur um árabil verið leiðandi í framleiðslu og markaðssetningu lífrænt ræktaðra afurða. Til að byrja með voru það aðallega kartöflur og grænmeti en síðan bættist kornið við og hefur ræktun á byggi til manneldis farið ört vaxandi.
Byggmjöl og Bankabygg frá Móður jörð má nú finna í verslunum víða um land. Bankabygg er tilvalið að nota í pottrétti, súpur, salöt, grauta og sem heilkorn í brauð. Byggmjölið er gott í allan bakstur og sem rasp á grænmetisbuff, kjöt og fisk. Bankabyggið og byggmjölið innihalda hátt hlutfall beta-glúkana (vatnsleysanlegar trefjar) sem lækka kólesteról í blóði. Byggið inniheldur andoxunarefni og nýjar rannsóknir sýna að í byggi eru efni sem styrkja ónæmiskerfið. Byggið er einnig gott fyrir viðkvæma maga og fyrir starfsemi ristilsins. Má þar nefna þann eiginleika að byggið er gelmyndandi þannig að það fóðrar og mýkir magann og nærir slímhúð ristilsins öfugt við t.d. hvít hrísgrjón sem eru stemmandi. Vegna þess hve byggið bindur mikið vatn við suðu flytur það vökva langa leið í meltingarveginum og er þess vegna sérlega gott fyrir meltinguna og ristilinn.
Bankabygg inniheldur flókin kolvetni, jafnar því blóðsykur og gefur jafna og góða orku og brennslu, auk þess er það ríkt af E-vítamíni og járni og inniheldur m.a. B1 og B2 vítamín og kalk. Ásgeir Theodórs yfirlæknir og sérfræðingur í meltingafærasjúkdómum mælir með neyslu Bankabyggs og byggmjöls Móður jarðar.
Móðir jörð framleiðir einnig tilbúna frysta rétti sem heita Baunabuff, Byggbuff, Rauðrófubuff og Byggsalat/Tabúle. Uppistaða hráefnisins er lífrænt ræktuð í Vallanesi svo sem Bankabygg, kartöflur, rófur, hnúðkál, rauðrófur, hvítkál, púrra og steinselja og það sem er aðfengið svo sem krydd og baunir er einnig vottað lífrænt. Réttirnir eru því 100% úr lífrænt ræktuðu hráefni. Buffin er best að setja frosin á pönnuna og hita í u.þ.b. 5 mín á hvorri hlið á nánast þurri pönnu þar til þau eru gullin og heit í gegn. Salatið er einungis látið þiðna og þá er það tilbúið, tilvalið að taka með sér í vinnuna og borða í hádeginu og frábært sem nesti í útileguna.
Hjá Móður jörð eru einnig framleiddar 3 tegundir af mýkjandi og græðandi húðolíum og heita þær Lífolía, Birkiolía og Blágresisolía. Lífolían er vinsæl nuddolía og margir hafa notað hana með góðum árangri við vöðvabólgu liðverkjum og bjúg. Birkiolían er alhliða mýkjandi og græðandi olía á allan líkaman fyrir þurra húð og exem. Blágresisolían er mild og græðandi og hefur reynst mörgum vel á psoriasis og þurra slímhúð.
Sjá allar vörur frá Móđir Jörđ




