A.Vogel
A. Vogel vörumerkið er eitt af fyrstu vörumerkjunum sem Heilsa byrjaði að flytja inn. Hinn heimsþekkti náttúrulæknir Alfred Vogel var fæddur árið 1902 í Basel í Sviss og þar ólst hann upp. Í barnæsku komst hann í kynni við lækningajurtir og þeirra virkni í gegnum föður sinn og afa. Hann var óþreytandi rannsóknarmaður, hæfileikaríkur fyrirlesari, heimshornaflakkari og manneskja sem, eins og nokkrir aðrir á undan honum, skildi hvernig náttúran virkar og læknar. Náttúrulækningar og þrá hans til að hjálpa samferðarmönnum sínum varð að æfistarfi hans og það stundaði hann af ástríðu til elliára. Þekking hans og hæfileikar eru grunnurinn að A.Vogel vörumerkinu. Í dag stendur það fyrir allt það sem þessi frumkvöðull í náttúrulækningum afrekaði. Þegar Alfred Vogel var 21 árs opnaði hann jurta og heilsuverslun í Basel. Þar leiðbeindi hann viðskiptavinum sínum við heilsusamlega næringu og lífsstíl í gegnum fyrirlestra og eigin útgáfustarfsemi. Hann byrjaði að útbúa remedíur og selja til viðskiptavina sinna. Árið 1929 hóf hann útgáfu mánaðar heisutímarits sem enn kemur út mánaðarlega. Alfred Vogel ferðaðist víða um heim til að viða að sér sem mestri þekkingu um náttúrulegar lækningaaðferðir og dvaldi m.a. hjá frumstæðum ættbálkum í Afríku um tíma í því skyni. Vogel fékk margar viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar og ævistarf og er lífsspeki hans viðhaldið hjá Bioforce í Sviss.
Á heimasíðu Bioforce í Bretlandi er mikill fróðleikur um ævi Alfreds Vogel, vörur og rannsóknir: http://www.avogel.co.uk/
Sjá allar vörur frá A.Vogel




