Yngjandi salatsósa með miso

Þessi er ótrúlega góð! Passlega súr, passlega sæt, passlega krydduð og með þetta óviðjafnanlega bragð sem miso gefur.

Gerir 150 ml – tekur 7 mínútur

Innihald:

  • 150 ml heitt vatn
  • 4 pokar af YOGI forever young tei
  • 3 msk hvítt misomauk
  • 3 msk síróp (döðlu, agave eða kókos)
  • 15 blöð af ferskri salvíu eða 1 tsk þurrkuð
  • Smá sjávarsalt

Aðferð:

  • Sjóðið vatnið og látið tepokana liggja í 5 mínútur
  • Takið pokana úr og látið teið kólna
  • Setjið allt í blandara og blandið þangað til sósan er silkimjúk