Hráefni:
- 1 1/2 bolli haframjöl
- 1 bolli vatn
- 1/3 bolli kasjúhnetumjólk eða önnur jurta/hnetumjólk
- 1/2 tsk Bloom Matcha duft
- 1 kúfuð tsk hunang
- Smá vanilluduft
- Malaðar – saxaðar pistasíuhnetur og fíkjur
Aðferð:
- Blandið haframjöli og vatni saman í pott og látið standa í 10 mínútur.
- Hitið hafrana varlega á lágum til meðal hita og bætið mjólkinni samanvið.
- Þegar hafrarnir hafa drukkið í sig vökvann og grauturinn fer að þykkna, hrærið þá hunangi, Matcha dufti og vanillu samanvið.
- Hrærið í þar til grauturinn er orðinn þykkur og mjúkur.
- Setjið í skál og setjið ferska ávexti og pistasíur ofaná.