Matcha kókos íste

Silkimjúkur og hressandi drykkur með matcha grænu tei.

Tilvalið að skipta einum kaffibolla út fyrir þennan.

Þessi uppskrift dugar fyrir tvo.

Innihald:

  • 1/3 bolli jurtamjólk að eigin vali
  • 1/2 msk Bloom matcha duft
  • 1/4 tsk vanilluduft
  • Smá klípa af gæða sjávarsalti
  • 1 kúfuð msk döðlu- eða kókossíróp
  • Smá múskat, nýmalað
  • 1 1/2 bolli mulinn klaki, hægt að nota „pulse“ á blandaranum
  • 1 bolli kókosmjólk úr dós, pískuð kekkjalaus eða sett í smá stund í blandara

Aðferð:

  1. Setjið allt nema klaka, múskat og kókosmjólk í blandara og vinnið þangað til silkimjúkt
  2. Deilið blöndunni í tvö glös, setjið klakann ofan í og hellið loks kókosmjólkinni yfir
  3. Rífið smá múskat yfir og stráið ögn af matcha tei efst til skrauts