Kókos og súkkulaðibitar

Hollir orkubitar sem er gott að eiga til að grípa í með kaffinu.

Gerir 6 stk – tekur 20 mínútur

Innihald:

  • 45 gr kókosmjöl
  • 3 msk síróp (kókos, agave eða döðlu)
  • 6 msk fljótandi kókosolía
  • 15 dropar vanillu extrakt
  • Innihald 1 poka af YOGI choco tei

Aðferð:

  • Ristið kókos og innihald tepokans á þurri pönnu við miðlungs hita í 3 mínútur
  • Bætið við vanillu, sírópi og kókosolíu og steikið áfram í 2 mínútur
  • Setjið í frystinn í 5 mínútur
  • Takið úr frystinum og mótið í kúlur eða litla ferhyrninga
  • Frystið í 10 mínútur í viðbót
  • Geymið í kæli eða frysti