Kókos og kasjúhnetu jógúrt

Anna Guðný, heilsubloggari á Heilsa og vellíðan deildi þessari snilldar uppskrift með okkur

Mjólkurlaus jógúrt er himnasending fyrir þá sem geta eða vilja ekki borða dýramjólkur afurðir.

Þessi er algjör næringarbomba og iðandi af vinveittum gerlum til að næra okkar innri flóru!

Innihald:

  • 1 dós Biona kókosmjólk
  • 1 bolli kasjúhnetur, lagðar í bleyti í a.m.k. 4 klst
  • Innihald úr 3 hylkjum af Terranova meltingargerlum
  • 1/2 tsk möluð chiafræ – gott að mala í kaffikvörn
  • 1/4 tsk vanilluduft frá Sonnentor
  • 1 tsk sítrónusafi
  • 1/2 tsk hlynsíróp
  • 1/4 tsk gróft salt

Aðferð:

  1. Finndu þér hreina glerkrukku. Best er að sótthreinsa hana með því að skola hana með sjóðandi vatni eða setja hana í 100°C heitan ofn í 10 mínútur. Öll áhöld þurfa líka að vera tandurhrein.
  2. Settu nú kókosmjólk í blandara og láttu hann vinna í smá stund.
  3. Helltu nú kókosmjólkinni í hreinu krukkuna og blandaðu innihaldi gerlahylkjanna vandlega saman við.
  4. Settu hreinan klút yfir krukkuna og festu með teygju. Leyfðu þessari blöndu að standa við stofuhita yfir nótt.
  5. Leggðu kasjúhnetur í bleyti.
  6. Næsta dag skolar þú kasjúhnetur og setur þær ásamt sýrðu kókosmjólkinni og restinni af innihaldinu í blandara og blandar þar til silkimjúkt.
  7. Helltu nú blöndunni í nýja, tandurhreina krukku og geymdu í ísskáp.
  8. Jógúrtin er tilbúin þegar hún er orðið vel köld.
  9. Geymist í a.m.k. 2 vikur í kæli

Gott að bera fram með berjum, granóla, þurrkuðum ávöxtum, hnetum, fræjum eða bara hverju sem hugurinn girnist.

Uppskriftin og allar myndir í þessari færslu eru eign Önnu Guðnýjar Torfadóttur.

Við þökkum henni kærlega fyrir.