Hressandi salatsósa

Klassísk salatsósa með skemmtilegu „tvisti“. Teið gefur kryddaðan keim af kanil, engifer, lakkrís og fleiri jurtum sem lífgar upp á hvaða salat sem er.

Gerir 150 ml – tekur 7 mínútur

Innihald:

  • 100 ml heitt vatn
  • 4 pokar af YOGI Bright mood tei
  • 1 tsk sinnep
  • 2 tsk síróp (agave, kókos eða döðlu)
  • Safi úr ½ lime
  • Smá salt og pipar

Aðferð:

  • Sjóðið vatnið og látið liggja í vatninu í 5 mínútur
  • Takið tepoka úr og látið kólna
  • Setjið allt í blandara og blandið þar til sósan er silkimjúk